OPNUNAR TÍMAR OG VERÐ 2025
OPNUNAR TÍMAR OG VERÐ 2025
Tjaldstæðið er opið allt árið og eru salernin og sturtur aðgengilegar allan sólarhringinn. Afgreiðsla tjaldsvæðisins er á Egilsstaðastofu Visitor Center sem er staðsett í þjónustuhúsinu okkar.
VERÐ
- Fullorðinn (13 – 67.ára): 2750 ISK (sturtur innifaldar)
- Börn (12 ára og yngri) FRÍTT
- Aldraðir og öryrkjar: 2000 ISK (sturtur innifaldar)
- Rafmagn (sólarhringurinn): 2000 ISK
- Gistináttaskattur 400 ISK per tjaldeining per nótt
- Salerni og sturtur eru innifaldar í verðum fyrir gesti tjaldsvæðis.
- Farangursgeymsla – sjá verðlista á tjaldsvæði
- WIFI: FRÍTT
Þeir sem eru EKKI að gista á tjaldsvæðinu greiða fyrir aðstöðuna:
Sturta: 1000 ISK
Salerni: 100 ISK
Eldhús 1000 ISK
greiðslur fara fram á www.campegilsstadir.is.
Á lágönn er möguleiki að greiða í sjálfsafgreiðsluposa ef móttakan er lokuð. .
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ OPNUNARTÍMAR:
• 1. maí – 31. maí 2025 er opið frá 8:30-15:00 (alla virka daga)
• 1. júní – 31. ágúst 2025 er opið frá 8:00-17:00 (alla daga)
• 1. sept – 30. sept. 2025 er opið frá 8:30 – 15 (alla virka daga)
Reglur á Camp Egilsstaðir
• Greiðslur á tjaldsvæði fara fram áður en tjaldað er á www.campegilsstadir.is
• Ávallt skal sýna öðrum gestum tillitsemi. Hlóðstyrkur tónlistar og annars skemmtiefnis skal vera þannig að ekki sé truflun af.
• Gæta skal hófsemi í meðferð áfengis. Ölvun er bönnuð á tjaldsvæðinu.
• Umferð ökutækja á svæðinu skal vera í lágmarki. Hámarkshraði á svæðinu er 10 km/klst.
• Friður skal vera á tjaldsvæðinu frá 11 á kvöldin og til 7 að morgni næsta dags. Umferð ökutækja er þá bönnuð og akstursleiðir mögulega lokaðar.
• Vinsamlegast hafið eitthvað undir einnota grillum sem hindrar að gras brenni. Það skilur eftir sig sár í grasinu sem grær seint.
• Bannað er að tendra varðeld á tjaldsvæðinu.
• Vinsamlegast ekki nota gasprímusa innandyra.
• Vinnið ekki spjöll á náttúrunni.
• Allt rusl skal setja í þar til gerð ílát og flokkað eftir merkingum þeirra. Flokkunartunnur er inni á Egilsstaðastofu. Rusl fer í græna gáminn, flöskur og dósir fara í bláu tunnuna og gas og batterí skal afhent starfsfólki.
• Lausaganga dýra er bönnuð á svæðinu, þau skal hafa í bandi. Óheimilt er að skilja gæludýr eftir ein á tjaldsvæðinu.
• Brot á reglum svæðisins getur varðað brottrekstur af tjaldsvæðinu.
• Engin ábyrgð er tekin á eigum tjaldgesta.
Upplýsingar um tengiliði
Kaupvangur 17,
700 Egilsstaðir
Simi : 470-0750 Netfang: camping@egilsstadir.is
Heimsækið www.visitegilsstadir.is fyrir upplýsingar um verslun og þjónustu.
FINNDU OKKUR